Óskyljanleg hegðan.

Er manneskjan orðin jafn skyni skroppin og hinir mállausu vinir mannsins (þ. e. Dýrin.)  Það er nú þannig að fólk virðist vera orðið hætt að hugsa um það að hverri gjörð fylgir afleiðing. Manni fallast nú hendur yfir þessu takmarkalausa: neyslu-einstaklings-vanvirðingarleysi. Ekki er orðið hægt að horfa á þessa annars ágætu og nauðsynlegu fréttatíma, nema að 1-2-3. og jafnvel 4 frétt fjalli um eitthvert hræðilegt slys. Þó er ótrúlegra að í öðru hverju slysi virðast aðrir vegfarendur, keyra framhjá á slíkum ofsahraða að hætta skapist af, fjalli fréttin um umferðarslys. Manni er orðið  órótt  yfir hvers vegna fólk þarf að haga sér með slíkum fávitagangi. Sjálfur þurfti ég á gestrisni heilbrigðiskerfisins að halda fyrir 24-árum síðan. Nú er ástandið orðið þannig að ég er alveg forviða yfir þessari óhemju. Auglýsi hér með eftir, einhverjum snefil af skynsemi hjá fólki, eða er máltækið: MARGUR VERÐUR AF AURUM API, KANNSKI VIÐEIGANDI Í ÞESSUM EFNUM. Nóg er af peningum, geymum þá og notum höfuðið, í eitthvað annað en að verða eins og ég í útliti eða þaðan af verra. Peningana er þá hægt að nýta til þess að bæta svo ekki sé annað en þessa hrörlegu vegi, af því óslepptu  að gera almannatryggingakerfið þannig úr garði að bótaþegar þurfi ekki að lepja dauðan úr skel.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

mér fallast líka hendur, þegar nógu langt hefur verið gengið hlýtur pendúllinn að sveiflast til baka

halkatla, 15.7.2007 kl. 10:12

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sæll dúllan mín, nú er ég á Aey og hef það bara þokkaleg gott. Vona að þér líði vel á Selfossi án mín.. see you 

Ásdís Sigurðardóttir, 16.7.2007 kl. 19:32

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ástandið er ekki gott og eins og þú segir; vanvirðingin á sér sums staðar engin takmörk.

Jóna Á. Gísladóttir, 16.7.2007 kl. 22:43

4 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Þetta er mjög slæmt ástand og þarf að gera eitthvað í því.

hafðu það gott

kv. Sædís

Sædís Ósk Harðardóttir, 20.7.2007 kl. 08:23

5 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Sendi þér bros og hlátur inn í daginn, eigðu góðan dag.

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 21.7.2007 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eiríkur Harðarson
Eiríkur Harðarson
Selfyssingur nýdottinn á 5-tugsaldurinn sem er léttruglaður en hárbeittur samfélagsrýnir sem segir hug sinn. Lesendum skal bent á að hafa samband á netfangið: hje@simnet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband