Tyrklandsferðarsagan (stutt ágrip)

Jæja þá er maður búinn með hið llllllllllllannnnnnnga sumarfrí, þó stalst ég til að setja inn 1 færslu á undan.

Eins og áður hefur komið fram þá fór ég til Tyrklands 19. maí síðastliðinn, það var BARA ÆÐISLEGT Joyful þegar ég var búinn að koma mér fyrir og ná áttum í framandi landi. Þá ákvað ég að skella mér í yfirhalningu, lét raka mig og snyrta Cool eftir það var stefnan tekin í hið MARGRÓMAÐA TYRKNESKA BAÐ. Þvílíkt sem það stendur undir nafni(hér á klakanum líkist það SPA)fljótlega þegar því var lokið ákvað ég að fara með vinum mínum í svokallað jeppasafarí.

Það er nú ekki meira safarí en það að við vorum látin vera í óbreyttum Land Rover jeppum sem síðan var ekið í hverja sprænu á fætur annarri og við látin blotna, þar fylgdu MIKLIR kvennskrækir þó bar á stöku  BASSAtóni. Eftir það hafarí lá leiðin undir stórt og fallegt tré þar sem þeir höfðu komið fyrir vatnsslöngu, sem skrúfað var frá þegar bíllinn var kominn undir.

Í ferðalok skruppum við yfir til RHODOS það var MIKIL upplifun, fórum inní virkisgarðinn og skoðuðum menningarminjar og margt annað. ÞESSI FERÐ VAR ALVEG MILLJÓN. Joyful Þetta er nú það helsta.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Álaugardaginn fer ég til Rhodos og ætla að reyna að sigla yfir til Marmaris.

Hólmdís Hjartardóttir, 9.8.2008 kl. 18:27

2 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Hólmdís: Góða ferð ég 98,9% þori að lofa þér því að hún mun verða svo ógleymanleg. Sjáðu nú til, 1.  Hitinn ætti að vera orðinn bærilegri en um mán. maí/jún 2. Ferðamannatíminn fer að styttast 3. Minjar þess LÖNGU liðna eru stórkostlegar.

Eiríkur Harðarson, 9.8.2008 kl. 18:41

3 Smámynd: Tína

Þetta hljómar eins og þessi safaríferð hafi bara verið stórhættuleg og ykkur hafi legið við drukknun . Frábært að heyra að ferðin hafi verið þér góð.

Hafðu það sem allra best Eiki minn.

Tína, 10.8.2008 kl. 08:42

4 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Tína: Stórefast að Tyrkneskar safaríferðir komist með hælana þar sem Íslenskar safaríferðir/fjallaferði hafa tærnar. Ferðin var sú langbesta af þeim ferðum sem ég hef farið í.

Megir þú hafa það virkilega MIKLU betra en bloggin þín segja.

Eiríkur Harðarson, 10.8.2008 kl. 23:38

5 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Siggi: Ég hélt að þú myndir átta þig hvenær afmælið væri þegar ég skrifaði athugasemdina við bloggið þitt sem bar titilinn átta.

Eiríkur Harðarson, 10.8.2008 kl. 23:42

6 Smámynd: Hulla Dan

Ég ætla einhvertíma til Tyrklands...  

Til hamingju með afmælið þitt um daginn

Kveðja frá DK.

Hulla Dan, 11.8.2008 kl. 13:10

7 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Heill og sæll Eiríkur minn. Þetta hefur verið geggjuð ferð. Sjálf hef ég ekki komið þarna en vinnufélagi minn hefur verið þarna í Tyrklandi oftar en einu sinni vegna frábærrar þjónustu og fallegs umhverfis.  Það eru flottar líka myndirnar úr fjallaferðinni.  Kær kveðja til þín úr Þorlákshöfnninni!

Sigurlaug B. Gröndal, 11.8.2008 kl. 13:15

8 Smámynd: Sölvi Breiðfjörð

Greinilega skemmtileg ferð hjá þér

Sölvi Breiðfjörð , 13.8.2008 kl. 20:20

9 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Til hamingju með afmælið um daginn og takk fyrir síðast...gaman að sjá þig gamla rör

Brynja Hjaltadóttir, 16.8.2008 kl. 20:39

10 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Hugljúf: Takk fyrir kveðjuna, út á Tyrkland/Grikkland VERÐUR þú að fara.

Sölvi: Þessi ferð var EINSTÖK.

Brynja: Takk sömuleiðis.

Eiríkur Harðarson, 17.8.2008 kl. 17:18

11 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Kvitt

Heimir Eyvindarson, 20.8.2008 kl. 01:08

12 Smámynd: Hulla Dan

Bara smá forvitni í mér... Hvernig vissiru hvað ég heiti???
Stendur það á síðunni minni? Eða þekkjumst við? Eller hvad?

Knús á þig inn í daginn

Hulla Dan, 20.8.2008 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eiríkur Harðarson
Eiríkur Harðarson
Selfyssingur nýdottinn á 5-tugsaldurinn sem er léttruglaður en hárbeittur samfélagsrýnir sem segir hug sinn. Lesendum skal bent á að hafa samband á netfangið: hje@simnet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband